19.9.2011
Gríðarleg aukning í notkun á Ferðaþingi og velta bókana stefnir í 2000 milljónir á þessu ári fyrir allt að 200.000 ferðamenn í gistingu, flug og ýmsar ferðir á vegum fyrirtæjanna sem nota Ferðaþing.
3.4.2011
Á fyrstu þremur mánuðum þessa árs þá hefur orðið fimmhundruð prósent aukning í bókunum í Ferðaþingi miðað við fyrstu þrjá mánuðina í fyrra.
14.3.2011
Boreal Travel skrifaðu undir samning við Ferðaþing í lok Febrúar og í dag er búið að setja allt upp í kerfinu og skrifa nýja síður
www.borealtravel.es. Verkefnið hefur gengið alveg sérstaklega vel og óskum við Boreal Travel til hamingju með nýju síðuna og bókunarkerfið.
22.2.2011
Nú þegar hefur heildarverðmæti bókanna hjá viðskiptavinum Ferðaþings tífaldast í samanburði við Febrúar í fyrra og veltan sem af er ári er orðinn fimmtán sinnum meiri núna en á saman tíma í fyrra.
21.2.2011
Í dag skrifaði Boreal Travel undir samkomulag við Ferðaþing. Boreal Travel sérhæfir sig í skipulagningu og þjónustu við ferðamenn frá Spáni sem koma til íslands.
16.2.2011
Fjórir nýir viðskiptavinir bættust í hóp viðskiptavina Ferðaþings í lok janúar og byrjun Febrúar, þetta eru Hálendisferðir ehf, Discover ehf. Blue Arctic Hotels (Hótel Garður og Hótel Suðurgata) og Vatnajökull Travel. Starfsmenn Ferðaþings vinna nú að því hörðum höndum að bæta þessum aðilum inn í bókunargrunnin og einnig er unnið að gerð heimasíðna fyrir alla þessa aðila. Markmiðið er að þeir verði allir komnir með nýjar heimasíður nú í lok febrúar eða í byrjun mars. Einnig hefur Rent in Reykjavík fengið nýja heimasíðu og Sérferðir fengið nýja bókunarsíðu og unnið er að því að Ernir geti farið að selja pakka ferðir beint á sinni heimasíðu.
16.2.2011
Á árinu 2011 hefur orðið gríðarleg aukning í bókunum í gegnum Ferðaþing ef borið er saman við árið í fyrra. Í janúar á síðasta ári voru gerðar bókanir fyrir rúmlega tvær milljónir króna en í janúar á þessu ári fór verðmæti bókanna í 50 milljónir króna. Og vöxturinn heldur áfram en núna þegar febrúar er aðeins hálfnaður þá eru komnar bókanir í gegnum kerfið fyrir tæpar fimmtíu milljónir króna en heildar veltan í kerfinu í febrúar á síðasta ári var rétt rúmar fimm milljónir króna.
5.1.2011
Á þessu öðru rekstarári Ferðaþings sem var að ljúka var velta bókana í Ferðaþinginu rúmlega 450 milljónir króna.
3.1.2011
Á milli jóla og nýárs gerðu Ferðaþing og Kynnisferðir með sér samkomulag um tenginu Kynnisferða við Ferðaþing. Þetta þýðir að allar ferðir á vegum Kynnisferða verða núna í boði fyrir þá sem eru að nota Ferðaþing og samskipti á milli söluaðila og Kynnisferða verður algjörlega rafrænt. Undirbúningur er hafinn á þessu verkefni og er ætlunin að ljúka því á næstu 4-6 vikum.
3.1.2011
Á milli jóla og nýárs kom nýr bókunarvefur Rent in Reykjavík í loftið. Til að byrja með verður hægt að kaupa gistingu beint á vefnum
www.rentinreykjavik.com
2.12.2010
Á miðnætti í nótt var glænýr bókunarvefur fyrir
Flugfélagið Erni settur í loftið. Nú er því hægt að bóka flug á alla fimm áfangastaði Ernis beint á netinu. Bókunarvefnum hefur vægast sagt verið vel tekið þar sem uppundir 50 bókanir hafa komið í gegnum vefinn þegar þetta er skrifað kl. 12:43.
20.10.2010
Nýr og glæsilegur söluvefur
Terra Nova Sol var settur í loftið í dag. vefsíðan heitir Iceland Tours og er með veffangið
icelandtours.is Markhópur vefsins eru erlendir ferðamenn á leið til Íslands. Vefurinn sem er tengdur
Markaðstorgi Ferðaþings býður upp á þjónustu og pakka meðal annars frá
mörgum þjónustuaðilum sem fyrir eru í Markaðstorgi Ferðaþings.
12.10.2010
Á stjórnarfundi
Samtaka ferðaþjónustunnar nú á dögunum var Ferðaþing ehf samþykkt sem aðili að samtökunum. SAF eru hagsmunasamtök allra fyrirtækja sem starfa í ferðaþjónustu. Með aðild að SAF er fólgin viðurkenning á stöðu okkar gagnvart ferðaþjónustunni og teljum við að hún muni auka athygli manna á Ferðaþingi og þeirri þjónustu sem við bjóðum.
6.10.2010
Á bókunarsíðunni
icelandonline.com er nú hægt að leigja bíla frá bílaleigunni
CC Car Rental með beinni tengingu við bílaleiguna. Bókunarsíðan fær upplýsingar um bíla og verð beint frá Markaðstorgi Ferðaþings. Við sölu tekur bókunarvél
icelandonline.com við greiðslu og gefur út rafræna þjónustubeiðni (voucher) sem færist sjálfkrafa til bílaleigunnar. Starfsmenn
CC Car Rental fá samstundis tilkynningu um viðskiptin og geta gert ráðstafanir í kjölfarið. Starfsmenn ITA sem reka bókunarþjónustu í Aðalstræti, Lækjargötu og á mörgum hótelum geta einnig gefið út rafrænar þjónustubeiðnir á bílaleigubílana með því að afgreiða beint úr Markaðstorginu.
4.10.2010
Flugfélagið Ernir hefur gert samkomulag við Ferðaþing um aðgang að Markaðstorgi Ferðaþings. Allt áætlunarflug þeirra verður sett upp í Markaðstorginu ásamt því að Ferðaþing mun útfæra bókunarvélar fyrir vef flugfélagsins.
eagleair.is
17.9.2010
Ágúst var mjög góður hjá viðskiptavinum Ferðaþings, en það sjáum við á fjölda bókana og viðskiptavina sem fóru í gegnum kerfið. Alls voru gerðar 7.643 bókanir í kerfinu og voru bókaðir 26.055 ferðamann. Á þessu öðru ári markaðstorgsins hafa því verið gerðar 22.314 bókanir þar sem hafa verið bókaðir 76.062 farþegar. Til samanburðar þá voru bókaðir rúmlega 19 þúsund farþegar allt fyrsta árið þannig að aukningin er mjög góð.
3.8.2010
Júlímánuður er langstærsti mánuður í bókunum hjá notendum Ferðaþings. Gerðar voru 8.191 bókanir og voru bókaðir 28.620 ferðamenn. Mikil aukning er einnig í bókunum á netinu hjá þeim viðskiptavinum sem hafa látið tengja síður sínar við Markaðstorg Ferðaþings.
28.6.2010
Á öðru starfsári Ferðaþings hefur bókunum í Markaðstorginu fjölgað mikið. Bæði hefur fjöldi bókana aukist mikið sem og fjöldi ferðamanna. En nú má segja að um það bil 5% allra ferðamanna sem koma til íslands á ári hafi nú þegar verið bókaðir í ferðir í Markaðstorginu.
3.6.2010
Hvalaskoðunnar fyrirtækið Elding skrifaði í dag undir samkomulag um að nota Ferðaþing fyrir sölu og bókanir. Elding er stærsta hvalaskoðunnarfyrirækið á landinu og nú eru öll hvalaskðunnarfyrirtækin í Reykjavík farin að nýta sér þjónustu Ferðaþings.
2.6.2010
Sérferðir ehf., sem stundum er kallað Puffin Express, bættist í hóp viðskiptavina Ferðaþings í dag. Nú eru þrjú af fjórum hvalaskoðunarfyrirtækjum í Reykjavík komin með vöruframboð sitt inn í Markaðstorg Ferðaþings.
20.4.2010
Frá því í byrjun mars þá hafa fjölmargir nýir viðskiptavinir bæst í hóp viðskiptavina Ferðaþings. Reykjavík By Day and Night er ferðaskrifstofa som ætlar að bjóða upp á nýja nálgun á ferðum og afþreyingu fyir ferðamenn. Ný vefsíða fyrirtækisinns hefur verið í smíðum hjá Ferðaþingi
www.reykjavikbyday.com og er hún komin i loftið. Einnig er verið að vinna að síðum fyrir Sjósiglingu og ICE 8X8 ásamt nokkrum verkefnum fyrir aðra viðskiptavini.
17.3.2010
Í lok janúar ákváðu Íslenskir Fjallaleiðsögumenn að færa allar vinnslur, utanumhald og bókanir inn í kerfi Ferðaþings. Einnig var gert samkomulag um að Ferðaþing taki yfir og endurskrifi alla vefi Íslenskra Fjallaleiðsögumanna.Verkefnið hófst í byrjun janúar og er fyrsti vefurinn að fara í loftið í þessari viku.
8.1.2010
Í dag skrifuðu AD Travel og Ferðaþing undir samstarfssamning um notkun AD Travel á Markaðstorgi Ferðaþings. AD Travel er ferðaskipuleggjandi sem skipuleggur ferðir um Ísland, seldar af erlendum ferðaskrifstofum og munu starfsmenn AD Travel nota Markaðstorg Ferðaþings til að halda utan um allar bókanir og ferðir vegna þessa.
23.12.2009
Í dag settum við í loftið nýja heimasíðu fyrir CC Car Rental
citycar.is Á heimasíðunni er hægt að bóka bíla beint með bókunarvél Markaðstorgs Ferðaþings CC Car Rental notar Markaðstorg Ferðaþings einnig fyrir aðrar bókanir og sölu umboðsmanna.
15.12.2009
Menningarmiðstöð Hornafjarðar og Ferðaþing hafa gert með sér samkomulag um aölu á aðgangi að söfnum á Hornafirði í gegnum Markaðstorg Ferðaþings. Öll safnaþjónusta veður sett upp í Markaðstorgi Ferðaþings, hvort sem um er að ræða söfn með ókeypis aðgang eða söfn með aðgangseyri.
7.12.2009
Í dag skrifuðu Kerlingarfjöll og Ferðaþing undirsamkomulag sem veitir Kerlingarfjöllum aðgang að Markaðstorgi Ferðaþings. Á næstu vikum munu starfsmenn Ferðaþings í samráði við Kerlingarfjöll setja upp framboð á gistingu og þjónustu sem í boði er á Kerlingarfjallasvæðinu inn í Markaðstorg Ferðþings þannig að hægt verður að bóka hana beint af netinu, setja inn í ferðapakka annarra ferðaþjónustuaðila og leyfa ferðaskrifstofum að bóka beint í lifandi umhverfi. Enn og aftur nýtist sveigjanleiki Ferðaþings ferðaþjónustuaðila en nú verður lika hægt að bóka gistingu í svefnpokaplássum þannig að bókunarvél Ferðaþings getur nú meðhöndlað allar tegundir af gistingu.
2.12.2009
Jökulsárlón ehf sem sér um móttöku ferðamanna við Jökulsárlón og
siglingar á lóninu hefur ákveðið að taka Markaðstorg Ferðaþings í
notkun. Starfsmenn Ferðaþings munu setja upp bókunarvél á vefsíðu
Jökulsárlóns ásamt því að í vor verður innleitt nýtt afgreiðslukerfi með
handtölvu og mun það nýtast við allt utanumhald á farþegum og ferðum.
9.9.2009
Í dag hafa Ferðaþing og Express Travel samið um notkun Express Travel á Bókunarvél Ferðaþings. ET er hluti af Ferðaskrifstofu Íslands (FÍ) sem á og rekur meðal annars Úrval Útsýn, Sumarferðir og Plús Ferðir sem skipuleggja ár hvert utanlandsferðir þúsundir íslendinga til útlanda. Express Travel mun hins vegar einbeita sér að því að selja útlendingum ferðir til Íslands. Þorsteinn Guðjónsson forstjóri FÍ bindur miklar vonir við þá þjónustu sem Ferðaþing mun veita Express Travel.
26.5.2009
Í dag, 26. maí, skrifuðu Ferðaþing og Notalegt ehf., sem rekur
gistiheimilið Reykjavík Bed & Breakfast við Grensásveg undir
samstarfssamning. Með notkun Markaðstorgs Ferðaþings fá eigendur
gistiheimilisins mjög góða yfirsýn yfir allar bókanir og
ferðaskrifstofur sem eru að selja fyrir þá sjá einnig alltaf hvað er
laust á hverjum tíma. Innleiðingin er þegar hafin og tekur hún aðeins 2
daga.
7.5.2009
Hvalalíf og Ferðaþing hafa gerðu samkomulag um notkun Hvalalífs á Markaðstorgi Ferðaþings miðvikudaginn 5 maí. Í dag föstudaginn 7. maí, aðeins tveimur dögum eftir að skrifað var undir samkomulagið er innleiðingunni lokið. Þessi innleiðing sýnir betur en margt annað hversu einfalt það er fyrir ferðaþjónustuaðila að gerast aðilar að Markaðstorgi Ferðaþings. Við hjá Ferðaþingi óskum Hvalalífi innilega til hamingju með þessa hröðu innleiðingu og vonum að árið 2009 verði gott hvalaskoðunarár.
22.4.2009
CC Car Rental hefur gert samkomulag um innleiðingu á Markaðstorgi
Ferðaþings og er því þriðji aðilinn sem semur um notkun á bókunarvél
Ferðaþings á aðeins einum mánuði.
Í kjölfar innleiðingu á Markaðstorgi Ferðaþings geta söluaðilar nú bókað
bílaleigubíla hjá CC Car Rental beint í Markaðstorgi Ferðaþings. Þeir
þurfa einungis að gera sölusamning við CC Car Rental og þá losna þeir
við að þurfa að hringja inn pantanir eða senda í tölvupósti, allt gerist
beint í sölukerfi Markaðstorgs Ferðaþings.
20.4.2009
4th Floor Hotel hefur skrifað undir samkomulag um að gerast aðili að Markaðstorgi Ferðaþings.
30.3.2009
Í dag skrifaði Netvísir undir samkomulag um innleiðingu og notkun á
Markaðstorgi Ferðaþings fyrir allar sínar bókanir. Stefnt er að því að
koma kerfinu í notkun fyrir 1. Maí. Netvísir er einn af stærstu söluaðilum að ferðum og gistingu á
íslandi og á í viðskiptum við mjög marga ferðaþjónustu aðila.
20.3.2009
Ferðaþing var stofnað þann 19 mars 2009 og hefur Ásgeir G. Bjarnason
rekstrarhagfræðingur verið ráðin framkvæmdastjóri félagsins. Eigendur
binda miklar vonir við vorið þar sem nú þegar hafa verið góð viðbrögð
við hugmyndinni að stofnun fyrirtækisins.
Stefnt er að því að ljúka fyrsta samningi fyrir lok mars þannig að hægt sé að hefjast handa við innleiðingu.