Fimmhundruð prósent aukning á milli ára
3.4.2011 -
Á þessu ári hefur viðskiptavinum Ferðaþings fjölgað mjög mikið og eru núna komnar sex nýjar vefsíður í loftið á vegum sex nýrra viðskiptavina, þetta ásamt aukningu í bókunum á öðrum ferðaþjónustu aðilum hefur leitt til gríðarlegrar aukningar bókanna. Heildarverðmæti bókana fyrstu þrjá mánuði þessa árs er rúmlega 250 milljónir króna en á síðasta ári á sama tímabili var þessi upphæð 50 milljónir króna og er því aukningin fimm hundruð prósent.