Eiginleikar

Bókanir

Hægt er að vinna með allar bókanir eftir að þær hafa verið gerðar. Breyta upplýsingum um viðskiptavini, farþega, bæta við og breyta athugasemdum eða að breyta þeim þjónustum og pökkum sem í bókuninni eru.

Flug

Hægt er að setja upp flugleiðir með öllu því helsta, sætaplan, forgangsröðun sæta ofl. ofl.

Hótel

Hægt er að setja upp mörg mismunandi hótel með herbergjagerðum að vild, verð er hægt að stilla af eftir tímabilum, herbergjategundum, fjölda í herbergi eða eitt verð per herbergi.

Bílaleiga

Hægt er að setja upp margar bílaleigur með mismunandi bílaflokka, verðuppbygging fer eftir bílaflokkum og tímabilum.

Þjónusta

Þjónustukerfið hentar vel fyrir allar einfaldar þjónustuvörur með skipulögðum tímasetningum. Gott dæmi eru Hvalaskoðunarferðir. Hægt er að byggja verðið upp á mjög margvíslegan máta, eftir vikudögum, aldri, tíma dags. ofl. ofl.

Pakkar

Með pakkakerfinu eru mismunandi vörur úr kerfinu settar saman í pakka flug, hótel, bílaleiga og þjónusta. Hægt er að búa til sér vörur sem koma einungis fram í viðkomandi pakka. Hægt er til dæmis að búa til pakka með gistingu á mismunandi gististöðum hverja nótt og mismunandi þjónustur hvern dag. Síðan eru búnar til margar brottfarir á pakkanum yfir allt sumarið.

Viðskiptavinir

Hægt er að halda utan um upplýsingar um viðskiptavini sem getur nýst vel sé um íslenska ferðamenn að ræða þar sem líkur eru á að þeir komi aftur ef þeim líkaði þjónustan.

Aðgerðaskrá

Markaðstorgið skráir allar aðgerðir notenda í kerfinu. Aðgerðaskránni er skipt í fjóra hluta.

Notenda skrá sem sýnir allar aðgerðir notenda Kerfisvilluskrá sem sýnir öll skipti sem kerfið klikkar Skrá yfir ókláraðar bókanir sem sýnir allar bókanir sem ekki var lokið við. Netpóst skrá sem skráir alla pósta sem sendir eru úr kerfinu

Skýrslur

Margvíslegar skýrslur er hægt að kalla fram með öllum þeim upplýsingum sem kerfið hefur að geyma. Allir notendur fá aðgang að fjölda almennra skýrslna ásamt því að innifalið í uppsetningargjaldi eru xx sérsniðnar skýrslur.

Sölukerfi

Innbyggða sölukerfið hentar vel til að bóka allar vörur sem fyrir finnast í Markaðstorginu. Hægt er að slá inn ítarlegar upplýsingar um viðskiptavini og farþega ásamt athugasemdum ofl. ofl. Einnig er hægt að nota flýtileiðir til að afgreiðsla á einföldum þjónustum taki sem styðstan tíma. Hægt er að taka við öllum mögulegum greiðslumátum eða jafnvel bíða með greiðslu.

Netpóstkerfi

Hægt er að nota Markaðstorgið til að senda út fjöldapóst til viðskiptavina. Hægt er að setja upp hópa sem viðskiptavinir skrá sig í og úr. Hægt er að stilla sendingar fram í tímann.

Myndagallerý

Í myndagallerýi Markaðstorgsins er haldið utanum allar myndir tengdar öllum mögulegum vörum í kerfinu. Hægt er að tengja myndirnar við allar vörur í kerfinu. sömu myndina við margar vörur og margar myndir við hverja vöru. Valin er aðal mynd fyrir hverja vöru. Myndagallerýið er fyrst og fremst notað í birtingu á myndum á vef í tengslum við vörur.

Tæknilegar upplýsingar

Markaðstorg Ferðaþings er vefhugbúnaðarlausn sem keyrir á Windows Server og öll gögn eru geymd í Microsoft SQL Server. Gagnagrunnurinn, bókunarkerfið og allar vefsíður eru vistaðar í hýsingarþjónustu Skýrr.

Tæknilegar kröfur

Markaðstorg Ferðaþings er keyrt í netvafra svo ekki er þörf á sérstökum vélbúnaðar eða hugbúnaðarkaupum hjá viðskiptavinum okkar. Mikilvægt er að nettengingar séu góðar, tölvurnar í meðallagi hraðvirkar og nýjustu vafrar séu notaðir. Þó svo að Markaðstorg Ferðaþings virki vel í öllum helstu vöfrum þá mælum við með því að notaðir séu Mozilla Firefox eða Google Chrome þar sem þeir eru hraðvirkari en t.d. Internet Explorer 8.

 
 

Samstarfsaðilar