Markaðstorg Ferðaþings
Markaðstorg Ferðaþings er fullkomið Sölu- og bókunarkerfi sem gerir ferðaþjónustuaðilum mögulegt að halda utanum vöruframboð á einum stað. Ólíkt öðrum bókunarkerfum þá tengir Markaðstorgið saman ferðaþjónustuaðila, og gerir þeim kleift að selja ferðir frá hvor öðrum.
Notendur fá aðgang að fullkomnu sölu- og bókunarkerfi sem gerir þeim kleyft að halda utan um allt sitt framboð á einum stað og veita upplýsingum áfram á söluvef sinn og til annarra söluaðila. Hægt er að stilla þjónustur nákvæmlega af með margvíslegum gildum:
-
Allar þjónustutegundir
- Nákvæmar lýsingar á vöruframboði
- Dagsferðir eða lengri ferðir
- Verð fyrir fullorðna/börn/ungbörn
- Sumar/vetrarverð og margt fleira
Hefðbundin viðskipti í ferðaþjónustu kalla á mikla vinnu í samskiptum milli aðila til að tryggja að réttar upplýsingar séu til staðar. Ef verð breytist eða uppbókað er þá getur það kostað mörg símtöl og mistök sem bæði eru kostnaðarsöm og koma óorði á viðkomandi. Með Markaðstorgi Ferðaþings er komið böndum á upplýsingaflæðið þannig að hver þjónustuaðili þarf einungis að hafa áhyggjur af því að hafa upplýsingarnar réttar í einu kerfi, Markaðstorgið tryggir svo að aðrir söluaðilar hafi aðgang að þeim öllum stundum og kemur þannig í veg fyrir leiðinleg mistök og eða fyrirhafnarmikið utanumhald í excelskjölum og skruddum.
Verðuppbygging Ferðaþings er einföld og hagkvæm fyrir alla. Viðskiptavinir greiða fast mánaðargjald sem byggir á stærð viðkomandi og umfangi þeirrar þjónustu sem hann fær. Að auki eru veltutengt gjald sem hlutfall af veltu viðkomandi í Markaðstorgi Ferðaþings sem tekur við einungis ef upphæð gjaldsins þann mánuð er hærra en fasta mánaðargjaldið. Fellur þá fasta mánaðargjaldið út á móti.