Ferðaþing

Ferðaþing ehf á og rekur bókunarkerfið Markaðstorg Ferðaþings. Ferðaþing veitir þjónustu til aðila í ferðaþjónustu, þjónustan er í formi aðgangs að Markaðstorgi Ferðaþings og ýmissi aukaþjónustu s.s. innslætti og viðhaldi upplýsinga, vefsíðugerð ofl. ofl. Ferðaþing stundar ekki ferðaþjónustu og selur hana ekki heldur. Öll viðskipti með ferðaþjónustu í Markaðstorgi Ferðaþings eru á milli ferðamanns, söluaðila og þjónustuaðila. Ferðaþing sér ekki um millifærslur milli aðila vegna viðskipta í Markaðstorgi Ferðaþings.

Ferðaþing hefur skuldbundið sig til að gæta jafnræðis milli aðila í ferðaþjónustu og er að þeim sökum ekki í eignatengslum við ferðaþjónustuðila á Íslandi.

Ágrip af sögu Ferðaþings

Í nokkuð langan tíma höfðu starfsmenn Leiða ehf unnið að ýmsum lausnum fyrir aðila innan ferðaþjónustunnar. Á þessum tíma höfðu oft komið upp umræður um hvort ekki væri hægt að setja á stofn einhverskonar markaðstorg fyrir ferðaþjónustuna. Einhvern vettvang þar sem ferðaþjónustuaðilar gætu komið saman með alla sína þjónustu og bókað milli aðila þvers og kruss yfir landið.

Umræðan var sprottin frá þeirri staðreynd að í hefðbundnum viðskiptum þurfa söluaðilar að fara inná margar vefsíður á mörgum stöðum og hringja mörg símtöl til þess eins að finna það sem er í boði, hvað það kostar og hvort það sé laust.

Það var af þessari ástæðu að Starfsmenn Leiða ehf hófu leitina að bókunarvél sem hefði þann sveigjanleika og þá eiginleika að hún gæti þjónað svo margvíslegri þjónustu sem er í boði hjá íslenskum ferðaþjónustuaðilum. Það var leitað víða, bæði hérlendis og erlendis þangað til að veturinn 2008-9 að leitinni lauk.

Vefhugbúnaðarfyrirtækið ZEUS web works hefur þróað slíkt bókunarkerfi undir nafninu ODIN. Bókunarkerfi ZEUS féll sem flís við rass á hugmyndum Leiða ehf. Kerfið sem var skrifað fyrir ferðaskrifstofur sem selja ferðir til útlanda var hægt að nota nánast óbreytt til að selja ferðir innanlands og með viðskipti á milli þjónustuaðila og söluaðila. Þegar hér var komið sögu var ákveðið að stofna um þetta verkefni fyrirtæki og ráða framkvæmdastjóra. Því ferli lauk í byrjun mars 2009 og framkvæmdastjórinn tók þegar til starfa. Framgang og árangur Ferðaþings eftir stofnun má kynna sér nánar á fréttasíðu okkar.

 
 

Samstarfsaðilar