Samstarfsaðilar
ZEUS web works ehf vefhugbúnaðarfyrirtæki er eigandi og þróunaraðili ODIN bókunarkerfisins sem Markaðstorg Ferðaþings keyrir á. ZEUS er jafnframt undirverktaki Ferðaþings í hugbúnaðarþróun, vefsíðugerð og uppsetningu bókunarvéla fyrir viðskiptavini. ZEUS er annar tveggja stofnaðila og eigenda Ferðaþings.
Verkfræðistofan Leiðir ehf er annar tveggja stofnaðila og eigenda Ferðaþings. Leiðir þróar og framleiðir sjálfvirk skráningarkerfi fyrir ýmislegan iðnað. Leiðir er undirverktaki Ferðaþings í þróun og þjónustu á afgreiðslubúnaði tengdum Markaðstorgi Ferðaþings s.s. Handtölvu ofl.
Markaðstorg Ferðaþings og allar vefsíður sem Ferðaþing hýsir fyrir viðskiptavini sína er vistað í hýsingarþjónustu Skýrr.
VALITOR sér um féhirðingu fyrir viðskiptavini Ferðaþings milli vefbókunarvéla og söluaðila.