AD Travel er ferðaskipuleggjandi með áherslu á þjónustu við erlendar ferðaskrifstofur. utanumhald á framboði og bókunum er á Markastorgi Ferðaþings. AD Travel gekk til samstarfs við Ferðaþing í janúar 2010.
Blue Arctic hotels eru með Hótel á tveim stöðum á háskólasvæðinu, Hótel Garð og Hótel Suðurgata. Hótelin eru aðeins rekin að sumri til. Hægt er að skoða framboð þeirra á vefsíðunni bluearctichotels.is Blue Arctic hotels gerði samning við Ferðaþing í febrúar 2011.
Boreal Travel er spænsk ferðaskrifstofa og ferðaþjónustuaðili sem sérhæfir sig í ferðum fyrir spánverja til Íslands, Grænlands og Lapplands. Vefsíða þeirra er www.borealtravel.es Boreal Travel gekk til liðs við okkur í febrúar 2011.
City Car bílaleigan er rekin í samstarfi við 4th Floor Hotel. City Car leigir út bíla af öllum stærðum og gerðum og nýtir Markaðstorg Ferðaþings til að halda utanum starfsemina. Hægt er að leigja bíla beint á www.citycar.is City Car gekk til samstarfs við Ferðaþing í júní 2009.
Discover er ferðaþjónustuaðili með ofurjeppaferðir og alhliða bókunarþjónustu vefsíðan er www.discover.is Discover gerði samning við Ferðaþing í janúar 2011.
Elding hvalaskoðun með sögu frá 1998 er stærsta hvalaskoðunarfyrirtækið á Íslandi í dag. Elding gerir út 4 skip frá Reykjavíkurhöfn. vefsíða Eldingar er www.elding.is Elding gekk til samstarfs við Ferðaþing í júní 2010.
Flugfélagið Ernir er hitt stóra flugfélagið í innanlandsflugi. Ernir flýgur á fimm staði innanlands frá Reykjavíkurflugvelli. Hægt er að bóka flug og pakkaferðir með flugi á vefsíðunni þeirra með Markaðstorgi Ferðaþings. Vefsíðan þeirra er hér: www.ernir.is Flugfélagið Ernir gekk til samstarfs við Ferðaþing í október 2010.
Hotel 66 er lítið hótel á Grensásvegi 14. Vefsíðan þeirra er www.hotel66.is Hótel 66 gekk til samstarfs við Ferðaþing í apríl 2011.
Hótel Höfn er 3ja stjörnu hótel á Höfn í Hornafirði Hægt er að bóka herbergi beint í Markaðstorg Ferðaþings á heimasíðu þeirra www.hotelhofn.is Hótel Höfn gekk til samstarfs við Ferðaþing í júní 2009.
Hvalalíf er hvalaskoðunarfyrirtæki með stórt og þægilegt 150 manna skip. Hvalalíf gekk til samstarfs við Ferðaþing í maí 2010. Hvalalíf heldur utan um allar bókanir í markaðstorgi Ferðaþings. Vefsíða þeirra er www.hvalalif.is
Iceland Travel Assistance er upplýsinga og bókunarþjónusta í Reykjavík. ITA rekur fimm verslanir í Reykjavík með áherslu á ferðamenn og bókunarþjónustu þeim til handa. ITA rekur einnig bókunarvefinn www.icelandonline.com sem unninn er af Ferðaþingi og nýtir bókunarvél Markaðstorgs Ferðaþings. ITA er fyrsti viðskiptavinur Ferðaþings og gekk til samstarfs við okkur í apríl 2008.
ICE 8X8 er nýstárlegt fyrirtæki á gömlum grunni. ICE 8X8 er með ferðir uppá og yfir Langjökul á stærsta fjallatrukk íslands THE ICE EXPLORER sem er byggður á átthjóla MAN eldflaugapalli frá NATO. Hægt er að bóka ferðir hjá þeim beint á heimasíðu þeirra www.adventure.is ICE 8X8 gekk til samstarfs við Ferðaþing í mars 2010.
Íslenskir fjallaleiðsögumenn er öflugt fyrirtæki með alhliða bókunar og ferðaþjónustu fyrir jafnt innlenda og erlenda ferðamenn. Íslenskir fjallaleiðsögumenn leggja áherslu á mikla breidd í framboði sínu og reka til að mynda fimm vefsíður til að ná til allra markhópa.
www.fjallaleidsogumenn.is,
www.mountainguides.is,
www.icelandrovers.is,
www.greenland.is og
www.icelandictravelmarket.is Íslenskir fjallaleiðsögumenn gengu til samstarfs við Ferðaþing í janúar 2010.
Jökulsárlón er ein af náttúruperlum íslands og jafnframt ein sú vinsælasta. Jökulsárlón ehf býður siglingar um lónið á hjólabátum. Jökulsárlón ehf hefur frá janúar 2010 notað Markaðstorg Ferðaþings til að halda utanum bókanir. Vefsíða Jökulsárlóns er www.jokulsarlon.is
Kerlingarfjöll eru ein af náttúruperlum Íslands. Þar rekur Fannborg ehf ferðaþjónustu með gistingu og fleiru. Fannborg heldur utanum alla sína gistingu í Markaðstorgi Ferðaþings og hægt er að bóka gistingu beint á vef þeirra www.kerlingarfjoll.is Fannborg gekk til samstarfs við Ferðaþing í desember 2009.
Kynnisferðir, eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins er frá maí 2011 með sitt ferðaframboð í Markaðstorg Ferðaþings www.re.is
Sérferðir ehf er Hvala og lundaskoðunarfyrirtæki í Reykjavík. Leynivopn Sérferða er Skipið þeirra sem fer hraðar yfir en önnur hvalaskoðunarskip. Sérferðir gekk til samstarfs við Ferðaþing í júní 2010. Vefsíða þeirra er www.puffinexpress.is
Rent in Reykjavik leigir íbúðir á höfuðborgarsvæðinu til ferðamanna. Hægt er að skoða og bóka íbúðirnar beint á vefsíðu þeirra www.rentinreykjavik.com Rent in Reykjavik gekk til liðs við Ferðaþing í Nóvember 2010
Reykjavik By Day & Night er bókunarþjónusta í Reykjavík með áherslu á sýningar, viðburði og stuttar ferðir frá Reykjavík. Allt þeirra framboð er bókanlegt á vefsíðu þeirra reykjavikbyday.com sem var smíðuð af samstarfsaðila okkar Zeus web works. RBD&N gekk til samstarfs við Ferðaþing í apríl 2010.
Sjósigling er fjölskyldurekið hvalaskoðunarfyrirtæki í Reykjavík. Sjósigling gerir út eikarbátinn Núma sem býður uppá notalega og sjarmerandi ferð. Rúsínan í pylsuendann er svo fiskisúpan sem boðin er um borð. Vefsíða þeirra er www.sjosigling.is Sjósigling gekk til samstarfs við Ferðaþing í mars 2010.
Terra Nova Sól hefur yfir 30 ára reynslu í ferðaþjónustu á Íslandi. Lengst af hefur fyrirtækið verið í heildsölu á ferðum til erlendra ferðaskrifstofa en er nú komið í smásölu á ferðum með nýjum vef frá Ferðaþingi. www.icelandtours.is Terra Nova Sól gekk til samstarfs við Ferðaþing í sept. 2010
Vatnajökull Travel er alhliða ferðaþjónustufyrirtæki í ríki Vatnajökuls með allt sitt framboð í Markaðstorgi Ferðaþings heimasíðan þeirra er www.vatnajokull.is Vatnajökull Travel gekk til samstarfs við Ferðaþing í febrúar 2011.
Wanderlust (Hálendisferðir) bjóða uppá öðruvísi ferðamáta, skokkferðir og ,,Betra er að njóta en þjóta" ferðir um landið allt. Hægt er að kynna sér nánar framboð þeirra á síðunni www.wanderlust.is Wanderlust gekk til samstarfs við Ferðaþing í febrúar 2011.